Lind & Tim
List – Hugmyndir – Saman

Art365

List í daglegu lífi. Útgáfa og verkefni sem varpa ljósi á íslenska myndlist, menningu og sögu — þar á meðal listadagatalið List í 365 daga.

Útgáfa og verkefni

List í 365 daga
List í 365 daga · 2014
List í 365 daga · 2014
List í 365 daga · 2015
List í 365 daga · 2015
List í 365 daga · 2020
List í 365 daga · 2020
List í 365 daga · Hreyfimynd
List í 365 daga · Hreyfimynd
Lesa meira

ART 365 er útgáfufyrirtæki sem að sérhæfir sig í miðlun og útgáfu á list, menningartengdu- og sögulegu efni. Við einbeitum okkur að verkefnum sem að eiga erindi og okkar markmið er að beina kastljósinu að þeim gífurlega sköpunarkrafti og þeirri miklu fjölbreytni sem að býr í íslensku samfélagi. Við hjá art 365 leitumst einnig við að finna nýjar og áhugaverðar leiðir við útgáfu á sögulegu efni. Ásamt því að standa að útgáfu á list- og menningartengdu efni þá mun art 365 stuðla að virkum samskiptum á milli íslenskra og erlendra listamanna, galleríeigenda og listunnenda. Með komandi verkefnum vill art 365 skapa vettvang þar sem að íslenskir listamenn og galleríeigendur geta með virkum samskiptum styrkt tengslanet sitt, miðlað verkum sínum og notið verka annarra listamanna. Það má líkja verkefninu við opin sýningarglugga þar sem að þú færð að njóta listar og sköpunar í þínu daglega umhverfi. Sjá nánar á Facebook art365. Í upphaflegri verkefniskynningu var einnig greint frá vinnu við gagnagrunn yfir gallerí, listamannarekin rými og verkefni og listamenn úr ólíkum greinum. Listadagatalið fyrir árið 2014 kynnti verk íslenskra myndlistarmanna og fleiri greinar skapandi starfs.