Sýningarrými utan hefðbundins ramma. Á heimili, á vegg og stundum undir berum himni á Höfn í Hornafirði. Vettvangur fyrir myndlist og óvænt kynni.
Sýningasafn
Sýningar
Lesa meira
Hlynur Hallsson er myndlistarmaður og safnstjóri Listasafnsins á Akureyri. Hann vinnur gjarnan með spreyjaða texta og tungumál. Verk hans snúast oft um samskipti, tengingar, skilning, landamæri, stjórnmál og hversdagslega atburði. Hlynur hefur sýnt verk sín á meira en 70 einkasýningum og tekið þátt í yfir 90 samsýningum frá því hann lauk mastersnámi í myndlist 1997. Hann hefur meðal annars sett upp einkasýningar hjá Kunstverein Heilbronn, Nýlistasafninu, Kunstverein Hannover, Overgaden í Kaupmannahöfn, Kuckei+Kuckei í Berlin, Listasafni Reykjavíkur og Kunstraum München. Spreyverk hans eru nú sýnd á Oslóartvíæringnum. Hlynur hefur unnið sem sjálfstæður sýningarstjóri og sett upp sýningar hjá Nýlistasafninu, Kuckei+Kuckei, Villa Minimo í Hannover, Kunstverein Hannover og hjá Chinati Foundation í Marfa, Texas. Hann var einn þeirra listamanna sem stofnuðu Verksmiðjuna á Hjalteyri 2008. Hlynur gaf einnig út tímaritið Blatt Blað frá 1994-2018. Hlynur hefur verið gestakennari við Myndlistaskólann á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Nánar á: hlynur.is og kuckei-kuckei.de

Lesa meira
Sólveig lærði í Myndlista- og handíðaskóla Ísl (1974 – 1978 ) og fór í framhaldsnám til N.Y og Hollands. Meðfram myndlistarsköpun sinni hefur hún ætíð fengist við kennslu, aðallega í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Frá 1980 hefur Sólveig sýnt myndlist sína á fjölmörgum einka- og samsýningum hérlendis og erlendis. Myndlistarverk eftir Sólveigu eru í eigu m.a Listasafns Ísland, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns ASÍ og fleiri stofnana. Útilistaverkið Streymi tímans var afhjúpað árið 2012, það er staðsett í Reykjavík. Verk hennar hverfast oft um tímann, og eru oftar en ekki náin skoðun á því umhverfi eða aðstæðum sem hún finnur sig í, upplifun hennar á ákveðnum stað og stund. Birting þessa þátta er í gegnum efni og aðferðir s.s. ljósmyndir þar sem unnið er á einfaldan máta með ljósið og filmuna, eða teikning með silfri sem vísar bæði aftur í tíma til listasögunnar og fram vegna áhrifa andrúms og tíma á efnið sjálft. Verkin á sýningu MUUR á Höfn eru unnin á vinnustofu hennar utan borgarinnar og skapast af þeim möguleikum sem staðurinn og þau efni sem staðnum tilheyra bjóða upp á. Víðigreinin er unnin í þeim knappa tímaglugga sem gefst þegar trjásafinn streymir upp bol og greinar að vori, þá eru greinar víðisins mjúkar og hægt er að beygja og tengja saman angana án þess að brotni.Greinar sem í eðli sínu eru opnar og vaxa út í loftið eru lykkjaðar saman eftir að berkinum hefur verið flett af. www.sola.is

Lesa meira
Steingrímur Eyfjörð sýnir verk í MUUR. Steingrímur hefur á vegferð sinni sem listamaður komið víða við. Hann er menntaður á Íslandi, Skotlandi, Finnlandi og Hollandi. Árið 2007 var hann fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum með verkið Lóan er komin. Hann hefur tekið þátt í fjölda einka- og samsýninga, hérlendis og erlendis. Hann er þekktur og virtur af kollegum og velunnurum listarinnar og finnst okkur því heiður að fá að kynna henn hér í MUUR.

Lesa meira
[ ] Vikram Pradhan & Halldór Eldjárn Tæknin er stöðugt að samtvinnast raunveruleika okkar og samruni hins eiginlega veruleika og sýndarveruleika virðist óhjákvæmilegur. Á þessari sýningu eru kannaðar þverlínur myndlistar og tækni þar sem hið eiginlega rými er túlkað með algrím sem framkallar ný óskoðuð rými og víddir sem myndgerast í formi arkitektúr teikinga. Þessi svæðisbundnu tölvugerðu verk eru unnin útfrá grunnmynd af ganginum Í Hagatúni 7 þar sem gallerí Muur er staðsett. Video verk sýnir nýjar útgáfur af rýminu í sífellu í rauntíma. Hvert prentað verk er ein útgáfa af endalausum mögulegum samsetninum rýma sem var valin til að verða einstakt prentverk. Halldór Eldjárn hefur einnig unnið sérstakt hljóðverk fyrir hvert verk sem er að hluta til tölvugert og er byggt á formlegum þáttum verkanna. Tónverkið í heild sinni verður pressað á vínyl plötu sem fylgir hverju verki. Sýningarstjóri: Björk Hrafnsdóttir Vikram Pradhan er fæddur á Indlandi en býr og starfar nú á Íslandi. Hann vinnur með mismunandi miðla á mörkum myndlistar og hönnunar til að skapa verk sem snúa að ó-eðlisfræði (heimspekigrein sem fjallar um hið ímyndaða svið ásamt frumspeki) og sálfræði. Rannsóknir og tilraunir eru mikilvægir þættir í listsköpun Vikrams. Halldór Eldján er tónlistarmaður, tölvunarfræðingur og listamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Í list sinni er hann stöðugt í leit af nýjum tenslum tækni og listar. Halldór hefur unnið með listamönnum á borð við Björk og Ólafi Arnards að tónlist og raf-hljóðfærum sem miða að því að blanda tölvugerðri tónlist við verk listamannanna.

Lesa meira
Fyrir sýninguna Fyrsta flokkun unnu Helga Páley og Una Björg bæði saman og í sitthvoru lagi. Saman ræddu þær nýjustu hugmyndir og tilraunir sínar og fundu þannig fleti sem skörðuðus í þeirra verkvinnslu sem þær unnu svo áfram í sitt hvoru lagi. Á sýningunni eru ný verk þar sem efni og áferðir leiddu þær áfram á nostalgískar slóðir og birtust í formi plast-muna, veggfóðurs eða annarra nytjahluta. Helga Páley Friðþjófsdóttir býr og starfar í Reykjavík. Helga vinnur málverk með blandaðri tækni samhliða þrívíðum skúlptúrum. Skúlptúrarnir tengjast oft á tíðum myndefninu sem teygir sig út fyrir rammann og býður sýningarrýminu sjálfu að vera partur af verkinu og myndheiminum. Teikningin hefur verið henni lengi hugleikin og spilar hún stóran sess í hennar listsköpun. Helga Lauk BA-prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2011. Frá útskrift hefur Helga komið að stofnun Leikhússins Frystiklefinn á Rifi ásamt Kára Viðarsyni og verið framkvæmdastjóri listahátíðarinnar Ærings á Rifi 2012. Frá árunum 2013 til 2015 var Helga partur af Kunstschlager hópnum og tók þátt í að reka gallerí hópsins við Rauðarárstíg 1 og síðar í Listasafni Reykjavíkur ásamt því að sýna með þeim erlendis sem og heima. Una Björg Magnúsdóttir er starfandi myndlistarmaður í Reykjavík. Hið ofurkunnuglega birtis oft í verkum hennar, gjarnan sem skúlptúrískar sviðsmyndir sem líkja eftir raunveruleikanum með augljósri gervi. Þannig endurgerir hún fábrotinn hverdagsleikann með óvæntum munum, hljóðum, myndum og ilmum. Una hefur sýnt viðsvegar, til að mynd í KEIV í Aþenu, GES-2 í Moskvu, Nordatlantens brygge í Danmörku, Listasafni Reykjavíkur og Y galleríi. Hún lauk MA í myndlist við ÉCAL í Sviss (2018) og BA í myndlist við Listaháskóla Íslands (2014). Hún er stjórnarmaður í Kling & Bang og Sequences listahátíðinni. Sýningarstjóri: Björk Hrafnsdóttir

Lesa meira
Þórdís Erla Zoëga Stafræn stefna – Digital direction Þórdís Erla Zoëga vinnur með tengsl okkar við hinn stafræna heim ásamt stefnur og rútínur okkar í margvíslegum miðlum. Með notkun sinni á litbreytingarfilmu og hólógrafísku efni rannsakar hún stafræna fagurfræði hversdagslífs okkar. Í Hagatúni er til sýnis hringlaga fræst plexíglerverk auk þriggja tvívíðra verka sem öll hafa litabreytingarfilmu sem breytist eftir lýsingu, stefnu og tíma dags. Stærð og form verkanna eru á svokölluðu landslagsformi sem við tengjum sífellt meira við tölvuskjáinn okkar heldur en hefðbundna landslagsmynd. Einföld formfræði og myndmál internetsins ræður ríkjum í verkum Þórdísar þar sem við stefnum í átt að stafrænni vídd. Í Nýheimum finnast svo tvö málverk þar sem Þórdís notast við blandaða tækni og efni eins og lakk og sprey á holografískan striga sem verður að freistandi áferðum og myndmáli sem minnir einnig á skjái og fagurfræði internetsins. Verk Þórdísar bjóða upp á endurtekið áhorf þar sem þau eru sífellt á stöðugri hreyfingu, sem miðast alltaf eftir stöðu áhorfandans. Málverkin gefa einnig kost á frjálsri narratífu og við lestur myndmálsins sem speglar endalausa valkosti internetsins. Verkin á sýningunni voru unnin af Þórdísi á tímabilinu 2020 til 2022 og hafa að hluta til verið sýnd í Gallerí Þulu, Norrtälje Konsthall og Listasafni Akureyrar. Þórdís Erla Zoëga (1988) stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og útskrifaðist þaðan 2012. Þórdís Erla var nýlega valin bæjarlistamaður Seltjarnarnesbæjar og vinnur nú að veggverki fyrir bæinn. Hún hefur sýnt verk í Amsterdam, Stokkhólmi, Berlín, Basel, Tékklandi og víðar. Hér á landi hefur hún unnið verk fyrir Listahátíð í Reykjavík, Listasafn Árnesinga, Gerðarsafn, Íslenska dansflokkinn, Konsúlat Hótel, Canopy Hilton hótel og sýnt í D-sal Hafnarhússins. Fyrir frekari upplýsingar um verkin hafið samband í gegnum: www.thordiserlazoega.is Sýningarstjórn: Björk Hrafnsdóttir

Lesa meira
Ráðhildur Ingadóttir er fædd í Reykjavík 1959. Hún nam myndlist í Englandi frá 1981 til 1986. Síðan þá hefur hún sýnt á Íslandi og í Evrópu í miklum mæli. Myndlist Ráðhildar Ingadóttur hefur að geyma texta, veggteikningar, veggmálverk, skúlptúra, myndbönd og uppákomur. Öllum þessum þáttum er oft spyrt saman í stórum innsetningum. Ráðhildur var gestakennari við Myndlista og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla íslands frá 1992-2002. Hún var stjórnarmeðlimur í Nýlistasafninu frá 2000-2002. Ráðhildur hefur verið sýningarstjóri og meðstjórnandi í fjölda sýninga á Íslandi og erlendis. Hún var listrænn stjórnandi Skaftfells miðstöðvar myndlistar á Austurlandi 2013 og 2014. Hún hefur hlotið starfslaun, verkefnastyrki og ferðastyrki á Íslandi og í Danmörk. Ráðhildur býr og starfar í Kaupmannahöfn, Seyðisfirði og Reykjavík Verk í opinberri eigu, Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Nýlistasafnið Verkið á sýningunni i Muur er byggt á teikningaseríu hennar “Hugleiðingar um Þyngdarbylgjur”. Tumi Magnússon fæddist í Reykjavík árið 1957. Hann nam myndlist við Myndlista og handíðaskóla Íslands og við AKI Academie voor Beeldende Kunst í Enschede, Hollandi. Fyrsta einkasýning hans var í Rauða húsinu á Akureyri árið 1981. Síðan þá hefur hann sýnt víða, þar á meðal Nýlistasafninu í Reykjavík 1986, Norrænu listamiðstöðinni í Helsinki 1991, Centre PasquArt, Biel, Sviss 1991, Sao Paulo Biennialnum 1994, MACMO Uruguay 2015, Listasafni Íslands 2017, Kyoto Art Center 2017 og PORT25-Raum für Gegenwartskunst, Mannheim 2023. Verk Tuma fjalla oft um hina einföldu, leiðigjörnu atburði daglegs lífs. Þau fjalla um þá einföldu lógik og náttúrulögmál sem liggja að baki þessum atburðum, og einnig um hvernig við snúum uppá hversdagsleikann og leikum okkur að honum til að gera hann þolanlegan og jafnvel áhugaverðan. Og þau fjalla um hvernig við getum notað daglega lífið sem tæki til að hugsa um eitthvað allt annað. Tumi Magnússon býr og starfar í Kaupmannahöfn með viðkomu í Reykjavík og á Seyðisfirði. Verkið á sýningunni heitir „Maður gengur á bókasafnið í Ameríku“ Hreyfingum hæla mannsins er fylgt þannig að þær mynda línur gegnum rýmið, sem svo eru teiknaðar á vegg bókasafnsins á Höfn í Hornafirði.

Lesa meira
Sýning Áslaugar og Finns ber yfirskriftina Umbúðalaust kraftaverk. Þótt þau hafi stundum unnið saman að sinni myndlist starfa þau yfirleitt hvort í sínu lagi og það á við að þessu sinni. Finnur sýnir ljósmyndaverkið Kraftaverk í skúlptúrlandi, heimspekilegar vangaveltur um lífið og tilveruna sem hann skapaði í skúlptúrgarði Árna Páls Jóhannssonar í Rangárþingi ytra árið 2017. Áslaug sýnir verk úr plastumbúðum, en hún vinnur með það efni í umhverfinu sem grípur auga hennar hverju sinni. Áslaug og Finnur hafa fylgst að frá árinu 1987 þegar þau hófu nám í Myndlista- og handíðaskólanum og hafa haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á rúmlega 30 ára löngum ferli sem myndlistarmenn. Samhliða sinni myndlist hefur Finnur starfað við hönnun, aðallega leikmyndahönnun fyrir leikhús en jafnframt fyrir söfn og sérsýningar af ýmsu tagi. Árið 2020 leikstýrði hann eigin leikverki, Englinum, í Þjóðleikhúsinu sem byggði á textum Þorvaldar Þorsteinssonar. Áslaug hefur sömuleiðis unnið ýmis störf samhliða myndlistinni en hún hefur verið skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík frá árinu 2014.

Lesa meira
Olga Bergmann og Anna Hallin mynda saman listamannateymið Berghall.Olga og Anna hafa frá árinu 2005 unnið fjölda verka og verkefna í sameiningu. Um er að ræða myndlistarsýningar heima og erlendis, til dæmis í Listasafni Íslands, Kling og Bang Gallerí, Safnasafninu, í Listasafni Einar Jónssonar og á norræna tvíæringnum Momentum í Moss í Noregi. 2021 stóðu þær að og tóku þátt í sýningunni Endurómur í Verksmiðjunni á Hjalteyri en sýningin hlaut íslensku myndlistarverðlaunin sem áhugaverðasta samsýning ársins. “Resonance 2.0”, Seinäjoki Kunsthalle, Finland. Auk fless hafa þær unnið verk fyrir opinbert rými bæði tímabundin verk í formi innsetninga innandyra og úti og verk fyrir almannarými og opinberar byggingar, sem dæmi má nefna útilistaverk fyrir öryggisfangelsið á Hólmsheiði. Frá árinu 2021 hafa þær rekið Gallerí Undirgöng – sem er útigallerí í miðbænumi fyrir listaverk í almannarými. Kímnigáfan í verkum Önnu Hallin og Olgu Bergmannkitlar, en hún er ekki bara það fyrsta sem við sjáum. Húnfuðrar ekki upp og hverfur, samt er hún líka tíbrá, af því aðhún þekkir dauðleikann og alvöruna sem tilvera okkar hvílir á.Hugmyndaflugið er algjört; það er jarðarbúans, geimfarans ogdreymandans sem á í góðu sambandi við jörðina, jarðkúlu semer bolti í þaraskógi, hafið, sem er blað, himininn, sem er dyr eðaop, öll dýr merkurinnar, fugla og fiska. Þær sveifla sér á milliforma; málverkin, myndböndin, skúlptúrarnir og teikningarnareiga sér enga hliðstæðu. Þær leiða okkur inní myndheim semá sér ekki takmörk, leika sér við okkur og á okkur og opna allskonar ókannaðar víddir. List þeirra fer sína eigin leið og eignar sér þó ekki leiðina. (texti : Kristín Ómarsdóttir 2022) Áfangastaður – Destination Verkið lýsir ferðalagi í gegnum tíma og rými á óskilgreindan áfangastað.Landslagið er bæði kunnuglegt og framandlegt í senn, bergmálar og endurtekur sig líktog algóritmi. Erum við í stödd í núinu í annari vídd eða erum við hér en á öðrum tíma? BERGHALL- artist duo – Anna Hallin and Olga Bergmann – Reykjavik, Iceland.(@annahelenkatarinahallin) (@obergmann5050) Berghall hafa einnig sýnt hjá Pro Artibus í Finnlandi og Bozar í Brussel. Meðal verkefna þeirra í almannarými eru verk fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Verk þeirra eru í söfnum Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Safnasafnsins, Listasafns Reykjanesbæjar, Gerðarsafns og Listasafns ASÍ.

